skemmtanalífið
25.10.2007 03:10:40 / Algleymismaðurinn

Myndbandsljóð

Nú á dögunum var haldin alþjóðleg ljóðahátíð á vegum Nýhil í Þjóðleikshúskjallaranum. Þar komu meðal annars fram ekki ómerkari skáld en Angela Rawling og Linh Dinh, en það eru þungavigtarskáld á heimsmælikvarða. Eitt helsta neðanjarðaskáld okkar Íslendinga, Jón Örn Loðmfjörð kom einnig fram á hátíðinni. Ég bjó til myndband við eitt af ljóðunum hans sem stóð til að sýna á hátíðinni en misfórst vegna tæknivandamála. Ég hef þó sett klippuna á netið og hana getur að lýta í vídjóhorninu.

Góða skemmtun.

H. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 17:53:14 / Algleymismaðurinn

Danmörk 2007

Í ágúst síðastliðnum skrapp ég til Danmerkur að heimsækja Hlyn og annað fólk í Danmörku. Ferðin var bara býsna vel heppnuð, það eina sem að skyggði á ferðina var slæmt veður. Þó tókst okkur að festa ágætis brettaefni á filmu. Ég er búinn að skella inn klippu á vefinn með nokkrum trikkum frá ferðinni. Einnig setti ég inn Flip demoið sem er í Algleymi, en þetta er önnur útgáfa sem þarna er á ferðinni (nýtt lag og öðruvísi klipping).

Ykkar,

H.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 17:41:59 / Algleymismaðurinn

Nýjar klippur

Jæja, nú tókst mér loksins að finna þjöppunarforritið sem gerir mér kleift að setja vídjóklippur á veraldarvefinn. Tvær nýjar klippur eru núna á síðunni - undir tenglinum sem ber heitið "vídjóklippan" - eins og fastagestir síðunnar ættu að vita. Önnur klippan er allur parturinn hans Flex eins og hann leggur sig sem verður í næstu mynd. Hin klippan er af ferð okkar Hlyns í skeitparkið þegar hann kom hingað síðast, auk nokurra annrra trikka úr parkinu.

Annars furða ég mig á því að það eru yfirleitt um 10 heimsóknir hérna á dag að meðaltali þó að ekkert nýtt hafi birst á síðunni í fleiri fleiri mánuði. Kominn tími á að lesendur síðunnar grípi ekki í tómt, enda eru nýju klippurnar ekki af verri endanum.

Bless.

H. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 20:38:57 / Hlynur

Tryggur 1993 - 2006

Hvíldu í fridi elsku vinur minn

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 23:19:08 / Algleymismaðurinn

Brandari

Hvað kallarðu mongólíta með holdris?

Kjánaprik!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.07.2006 20:58:13 / Algleymismaðurinn

hæhó

Kominn nýr trailer í vídjóklippuhornið..... njótð vel


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 15:49:22 / Hlynur

Afsakid Hlé

Fyrirgefid gott fólk, en ég hef ekki haft mikinn adgang ad tølvum undanfarid, vegna thess ad Fjóla er á Íslandi med tølvuna sína, en ef thid hafid eitthvad ad segja, getid thid annad hvort sent mér e-mail eda skrifad hér í komments.

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 21:06:54 / Algleymismaðurinn

Ekki er allt gruggugt vatn djúpt

Í dag var farið að skauta og mynda. Örvar er kominn til Íslands en þeir sem til hans þekkja vita að honum er margt til listanna lagt í brettaíþróttinnni. Honum tókst að ná tveimur nýjum stórglæsilegum brettakúnstum í myndina sem er í vinnslu hjá H.H. film. Ég hef sett myndbandsklippu af því inn á síðuna ykkur til gagns og gamans.

En út í allt aðra sálma; hindúi nokkur á Indlandi hefur verið með aðra hendina á lofti í sjö ár. Hann sagði að það hefði verið sárt fyrstu tvö árin. Ef það er ekki aðdáunarvert þá veit ég ekki hvað er það.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 08:59:06 / Hlynur

Sumarfrí nálgast

Jæja, madur er hérna á næst sídasta degi í skólanum...
Á eftir er ég ad fara í atvinnuvidtal sambandi vid praktíkpláss og á morgun á ég ad framleggja lokaverkefnid mitt...
FYLLERÝ KLUKKAN 10:00 Í FYRRAMÁLID!!!!!!!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 01:43:28 / Hlynur

Til Harðar Halldórssonar

Heyrðu félagi, meikaru nokkuð að setja bara alla Algleymi á netið svo maður getur bara séð hana hvenær sem maður lystir?
Kveðja, Hlynur Gunnarsson

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 16:56:14 / Algleymismaðurinn

Trailer

Nú er maður kominn í svona vaktavinnu sem virkar þannig að maður vinnur mjög stíft í 2-3 daga og fær svo frí í 2-3 daga. Þegar maður er í fríi er gott að hafa eitthvað sniðugt að gera. Ég eyddi deginum í dag í að búa til trailer/auglýsingu fyrir kvikmyndina Algleymi. Ég lét ekki þar við sitja heldur bjó ég líka til hálfgerða stuttmynd eða eitthvað í þá áttina. Hægt er að skoða herlegheitin undir "vídjóklippan" hér á síðunni. Njótið vel.  

Kveðja, H.H.


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 11:44:06 / Hlynur

Ólympíuleikarnir 2006

Velkomin til Ólympíuleikanna 2006!!!

Keppt verdur í eftirfarandi greinum:

Kastgreinar:
Skítkast, Asmakast, Krampakast, Ælukast, Reidiskast, Æsingskast, Brjálædiskast Uppkast og Hláturskast

Gøngugreinar:
Afturganga, Svefnganga, Krøfuganga, Nidurgangur, Mótmælaganga, skemmtiganga og Altarisganga, Af gøflum ganga og skrúdganga

Hlaupgreinar:
Handahlaup og Skeidarárhlaup

Støkkgreinar:
Uppstøkk, Uppstøkk án atrennu, Valhopp, Valhopp án atrennu, Hipp hopp og Støkkbreyting

Sundgreinar:
Húsasund, Eyrarsund, Thúsund, Tvøthúsund, Thrjúthúsund o.s.frv.

Skotfimi:
Skúmaskot og Olnbogaskot

Reidfimi:
Rassarídingar, Munnrídingar, Ridlakeppni og Ringlureid

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 08:07:20 / Hlynur

Langafi Gunnar Gunnarsson 117 ára

Bölvaða líf! . . . sértu skapað af einhverjum guði, er þér stýrir, þá er það illur guð, vanmáttugur guð, heimskur guð! En það er ekki til neinn guð . . . enginn Guð! . . . enginn guð! . . . Hverju þjónar það, að þið komið með lilju vallarins og segið: sjá, Guð hefur skapað hana . . . er hún ekki dásamleg? . . . og tákn um almætti hans?
Ég segi: nei! nei! nei! Því hafi hann skapað lilju vallarins, þá hefur hann einnig skapað grimmar ófreskjur sjávarins! Hafi hann skapað hið góða, þá hefur hann einnig skapað hið illa! Vilji hann stundum það, sem við kölluð gott, þá vill hann ekki sjaldnar það, sem við nefnum illt. Og góður guð . . . algóður guð . . . getur ekki viljað illt! Og hið illa getur ekki heldur átt sér stað án hans vilja . . . ef hann er almáttugur!
En það er aðeins hugarburður, að til sé slíkur guð! Sá Guð, er við trúum á . . . eða ímyndum okkur að við trúum á . . . er guð, er við sjálf höfum gjört okkur . . . Það er að segja: forfeður okkar; villimenn og siðleysingjar! Nei, það er enginn Guð til! Að minnsta kosti enginn guð, sem við þekkjum og skiljum; enginn guð, er við getum trúað á, beðið til, lotið . . . þrælar sem við erum!
Nei, lífið . . . lífið! - aftur var hann að því kominn að missa vald á hugsunum sínum. - Lífið er einungis strönd, sem okkur öllum skolar upp á og bíðum þar skipbrot . . . hvert á sinn hátt! Lífið leikur sér að okkur eins og slóttug bylgjan . . . brosir við okkur til þess eins að gera fallið, örvæntinguna, enn meiri. Öll erum við ekkert nema sjórekin lík! . . . Sjórekin lík . . . á strönd . . . lífsins.

Gunnar Gunnarsson rithøfundur

Hvers vegna er mannskepnan svona furduleg... Ég er ekkert ad segja ad ég ætli ad gerast grænmetisæta, thví ég er einn af theim furdulegu... Eina stundina horfum vid á dýr slátrad, fellum tár og vorkennum greyid skepnunni sem gerdi engum mein... En samt høldum vid dýrindis BBQ veislur og hámum í okkur skepnurnar, drekkum og hlæjum med eins og vid ættum lífid ad leysa.

Hlynur Gunnarsson ofurølvi


Það gæti þó varla verið tilætlan Skaparans að þegar hann, Benedikt, væri allur, yrði látið skeika að sköpuðu um aumingja skepnurnar sem ráfa hingað inn á öræfaslóðir og gangnamönnum sést yfir á haustin? Það gat það ómögulega verið. Því enda þótt kindur séu ekki nema kindur, þá eru það þó verur gæddar holdi og blóði - holdi, blóði og sál. Eða var Eitill kannski sálarlaus skepna? - eða Leó? - eða Faxi? Var sakleysi þeirra og trúnaðartraust minna virði en hin stopula trú mennskra manna? Benedikt hristi höfuðið - hver sem eftirmaður hans kynni að verða gat hann ekki óskað honum neins betra en slíkra förunauta. Sá sem á sér álíka félaga er ekki einstæðingur í henni veröld. Sumir eiga sér annað og meira - eða svo er álitið. En hver á sér annað betra? Það væri meira vanþakklætið að láta sér sýnast að hlutskipti manns í lífinu hefði getað orðið ríkulegra. Svo vanþakklátur og vitgrannur var Benedikt ekki. Engar skepnur skaparans á jarðríki báru af vinunum hans þremur. Og samband manns og dýrs var á sérstakan hátt heilagt og órjúfanlegt. Einn góðan veðurdag verður ekki hjá því komist að taka ákvörðunina: kúlu í þenna, kníf í hinn. Það er gjaldið. Í því er ábyrgðin fólgin. Skyldan til að taka sér vald ekki aðeins yfir lífi þeirra, en einnig dauða, eftir því sem vit og samviska býður. Tilveran var nú einu sinni svona. Það var sárt. Sá einn sem reynt hefur getur gert sér í hugarlund hversu sárt það er. Á vissan hátt eru allar skepnur fórnardýr. En - var ekki allt líf fórn? - væri því réttilega lifað. Er það ekki það sem er gátan? - að grómagnið kemur innan frá, er sjálfsafneitun. Og að allt það líf sem er ekki fórn er rangsleitið og endar í eyðingu?

Aðventa 1937

Gunnar Gunnarsson rithøfundur


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 06:07:58 / Hlynur

Hvurslags er thetta?

Ja madur er bara staddur í skólanum, ekkert búinn ad sofa, nákvælega ekkert og madur er ennthá eiginlega helvíti vel ídí... DJØFULSINS.....
Ég er ad spekulera í ad beila um 12 tímann.
YFIR & ÚT.

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 10:11:02 / Hlynur

Eurovision á laugardaginn

Nú fer ad nálgast Evrósjónina og var ég ad velta thví fyrir mér hvort thid gódir lesendur gætud komid med gódar hugmyndir ad Evrósjón drykkjuleikjum, ekki samt svona mikid til ad muna eins og stód á b2, samt í svipudum stíl eda eitthvad.

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5